Facebook síða Glerárskóla
|
Skrifað 07. 09 2018 Í morgun kom aðili frá Körfuknattleiksdeild Þórs með körfubolta handa nemendum í Glerárskóla.Þau Karlotta, Marsibil og Styrkár í 6. bekk aðstoðuðu við myndatöku vegna þessa.Körfuboltarnir verða örugglega vel nýttir hér í skólanum.

Skrifað 28. 08 2018 Næstkomandi fimmtudag verða nemendur og starfsfólk Glerárskóla á ferð og flugi úti um víðan völl. Unglingastigið stefnir á að ganga upp að Skólavörðu, miðstig upp í Fálkafell og Kjarnaskóg og yngsta stig fer m.a. í Lystigarðinn, Krossanesborgir, Naustaborgir og nágrenni skólans. Muna að koma klædd miðað við aðstæður.
Skrifað 15. 08 2018 Sæl og blessuð. Nú er nýtt skólaár að hefjast hjá nemendum Glerárskóla. Skólasetning hjá 2.-10. bekk er þriðjudaginn 21. ágúst kl. 10:00 í íþróttasal skólans.
Viðtöl við fyrstu bekkinga og forráðamenn þeirra eru sama dag frá kl. 8:00-16:00.
Skóli hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 22. ágúst.
Skrifað 14. 06 2018 Sumarkveðjur frá starfsfólki Glerárskóla. Njótið sumarsins, skóli hefst að nýju þriðjudaginn 21. ágúst með skólasetningu.
Skrifað 14. 06 2018 What exactly is especially useful in this type of essay is you are capable to receive a very first individual view on a matter, whether that is about somebody’s existence or some thing they’re a specialist at. Typically, you may contend strongly for the chief trigger in this sort of composition. The dreaded school essay . . . → Lesa..
Skrifað 04. 06 2018 Krakkarnir í 1. bekk hafa ýmislegt brallað í vetur. Þau hafa hitt krakka frá leikskólunum, tekið þátt á samsöng í Hofi, ferðast með strætó, farið í göngutúra, fengið fræðslu um aðventuna í Glerárkirkju, fyrir utan nám og leik í skólastofunni. Síðasta daginn fóru börnin í sæmilega langan göngutúr með kennurunum sínum í dásemdar veðri og . . . → Lesa..
Skrifað 01. 06 2018 Skólaárinu 2017-2018 verður slitið þriðjudaginn 5. júní. Skólaslit 1.-7. bekkja fara fram í íþróttahúsi Glerárskóla sem hér segir:
1.-4. bekkir kl. 9:00 og 5.-7. bekkir kl. 10:00.
Nemendur mæta í sal íþróttahússins á skólaslit og síðan inn í stofur með umsjónakennara í stutta kveðjustund.
Skólaslit í 8.-10. bekkjum fara fram í Glerárkirkju kl. 16:30.
Skrifað 01. 06 2018 Í morgun var líf og fjör í skólanum, jafnt úti sem inni. Margir bekkir byrjuðu á úti vorleikjum og síðan var hin árlega Vorhátið frá 11:30. Mikið um að vera s.s. sýning á verkum nemenda, tombóla, leikir, andlitsmáling, hjólaskoðun o.fl. Sólin tók þátt í hátíðinni með okkur og brosti hringinn.
. . . → Lesa..
Skrifað 17. 05 2018 8. bekkur SM vann til verðlauna í samkeppninni Tóbakslaus bekkur 2018. Til að eiga möguleika á verðlaunum þurftu nemendur bekkjanna að senda inn áhugavert efni tengt tóbaksvörnum. Þau sendu inn flott myndband um efnið sem þau sömdu og gerðu sjálf. Til hamingju 8. bekkingar ! Hér er myndbandið
Skrifað 15. 05 2018 Krakkarnir í 4. bekkjum í Glerárskóla unnu Grunnskólamót UFA á Akureyri í frjálsum íþróttum sem haldið var í Boganum í morgun þriðjudag. Þar keppa allir 4.bekkir á Akureyri m.a. í hlaupum, stökkum, köstum og reipitogi. Til hamingju 4.bekkir !
. . . → Lesa..
|
|