Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Umhverfismál

Starfsfólk og nemendur Glerárskóla hafa unnið ötullega að umhverfismálum síðustu skólaár og svo verður áfram. Umhverfisnefnd starfar í skólanum en í henni sitja fulltrúar starfsmanna og nemenda úr öllum bekkjum skólans.

Síðan 12. september 2008 hefur skólinn flaggað Grænfánanum.

Umhverfisstefna Glerárskóla:
Glerárskóli vill efla vitund nemenda og starfsmanna skólans um umhverfismál og vekja til umhugsunar um sameiginlega ábyrgð á umhverfinu.

Glerárskóli er Grænfánaskóli, en Grænfáninn er alþjóðlegt umhverfismerki samtakanna FEE (Foundation for Environmental Education). Með þessu verkefni viljum við í Glerárskóla auka vægi umhverfismenntar í skólanum.

Markmið verkefnisins eru að:

  • Bæta umhverfi skólans, minnka úrgang og notkun á vatni og orku.
  • Efla samfélagskennd innan skólans.
  • Auka umhverfisvitund með menntun og verkefnum innan kennslustofu og utan.
  • Styrkja lýðræðisleg vinnubrögð við stjórnun skólans þegar teknar eru ákvarðanir sem varða nemendur.
  • Veita nemendum menntun og færni til að takast á við umhverfismál.
  • Efla alþjóðlega samkennd og tungumálakunnáttu.
  • Tengja skólann við samfélag sitt, fyrirtæki og almenning.

Framkvæmd umhverfisstefnunnar í Glerárskóla

  • Efla markvissa umhverfismennt í skólanum
  • Umhverfismennt skal vera samofin sem flestum námsgreinum
  • Nemendur og starfsfólk skulu vera vel upplýst um náttúru- og söguminjar í umhverfi skólans
  • Fylgst sé með stöðu umhverfismála í skólanum á hverjum tíma 
  • Gerðar séu áætlanir um aðgerðir og forgangsröðun verkefna
  • Upplýsa aðra um umhverfisstefnu okkar og fá fleiri í lið með okkur.
  • Fræðsla um umhverfismál í öllum bekkjum með sérstakri áherslu á að kynna nemendum nánasta umhverfi og lífríki þess.
  • Virkt samstarf við félagasamtök og áhugamenn um umhverfismennt og útivist.
  • Nemendum og starfsfólki verði gert auðvelt að koma hugmyndum sínum og skoðunum varðandi umhverfismál á framfæri.
  • Í skólanum sé hvatt til útivistar og hreyfingar.
  • Skólalóðin sé aðlaðandi og hvetji til útivistar og hreyfingar.
  • Með aukinni endurnotkun og sparsemi verði sorp eins lítið og hægt er.

Umhverfissáttmála skólans á að endurskoða reglulega. Skólaárið 2019-2020 unnu nemendur í umhverfisnefnd nýjan sáttmála sem settur var upp framan við mötuneyti skólans.

Umhverfissáttmáli Glerárskóla 2020:

  • Glerárskóli vill efla vitund nemenda og starfsmanna skólans um umhverfismál og vekja okkur öll til umhugsunar um sameiginlega ábyrgð á umhverfinu.
  • Glerárskóli ætlar að efla lýðheilsu, endurvinna og flokka. Minnka úrgang og neyslu.
  • Vinnum saman að verndun jarðar.

Markmið skólans skólaárið 2020-2021 er:

Endurvinnsla og flokkun
Að efla lýðheilsu
Að minnka úrgang og neyslu

Nemendur í umhverfisnefnd komu með þessar hugmyndir að leiðum til að framfylgja þessum markmiðum eins og sjá má á þessum umhverfissáttmála sem þau gerðu (smellið á myndina til að sjá stærri útgáfu hennar).