Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Verkefnastjóri stoðþjónustu

Verkefnisstjóri stoðþjónustu stjórnar og skipuleggur stoðþjónustu ásamt því að veita kennurum ráðgjöf. Hann starfar undir stjórn skólastjóra og deildarstjóra í umboði skólastjóra.

Helstu verkefni (auk sérkennslu) eru að:

  • skipuleggja og stýra fyrirkomulagi stoðþjónustu fyrir nemendur með sérþarfir
  • skipuleggja og stýra framkvæmd kennslu barna með íslensku sem annað mál
  • vera í forystu um gerð einstaklingsnámsskráa og vera ráðgefandi aðili við gerð þeirra
  • vera kennurum skólans faglegur ráðgjafi um skipulag kennslu
  • vera öðrum kennurum skólans innan handar varðandi skipulag á kennslu nemenda með sérþarfir
  • leiðbeina stuðningsfulltrúum í samstarfi við umsjónarkennara
  • gera stundatöflur stuðningsfulltrúa í samráði við deildarstjóra og kennara
  • stýra fundum Nemendaverndarráðs og vera í samskiptum við fulltrúa
  • aðstoða umsjónarkennara til að vera í samstarfi við heimili, skóla og stoðþjónustu vegna nemenda með sérþarfir
  • annast samskipti við sérfræðinga skólateymis Akureyrarbæjar í samráði við deildarstjóra eða aðra aðila stoðþjónustunnar
  • halda utan um niðurstöður greininga/skimana í samráði við deildarstjóra, skipuleggja og fylgja eftir inngripum í kjölfar skimana
  • hafa eftirfylgd með sértækum verkefnum innan stoðþjónustunnar sem tengjast nemendum