Nemendaverndarráð Glerárskóla fjallar um málefni einstakra nemenda eða nemendahópa og leitar úrræða á vandamálum er upp koma bæði námslegum og félagslegum.
Fundi nemendaverndarráðs sitja skólastjóri, hjúkrunarfræðingur, námsráðgjafi, iðjuþjálfi, stoðþjónustukennarar og deildarstjórar. Jafnframt sitja fundina til skiptis sérkennsluráðgjafi og/eða sálfræðingur frá skólateymi og fulltrúi frá barnaverndarteymi Fjölskyldudeildar Akureyrar.
Umsjónarkennarar og/eða sérkennarar eru boðaðir á þessa fundi eftir því sem ástæða þykir til.
Deildarstjóri er formaður ráðsins.