Rannís veitti 34 skólaverkefnum Erasmus+ styrk nú á dögunum og hlaut Glerárskóli styrk fyrir verkefnið “Developing pupils skills”. Verkefnið verður unnið í samstarfi við skóla í Tyrklandi, Slóveníu, Litháen og Spáni og er áætlað að það taki tvö ár. Markmið verkefnisins er að þjálfa nemendur á aldrinum 11-16 ára í læsi í gegnum sögu, sögugerð og þjóðsögur landanna. Á myndinni má sjá Helgu Halldórsdóttir deildarstjóri og Karen Jóhannsdóttir kennara ásamt Andrési Péturssyni, verkefnisstjóra skólahlutans og Ágústi Hirti Ingþórssyni, forstöðumanni Landskrifstofa Erasmus+