Næstkomandi fimmtudag verða nemendur og starfsfólk Glerárskóla á ferð og flugi úti um víðan völl. Unglingastigið stefnir á að ganga upp að Skólavörðu, miðstig upp í Fálkafell og Kjarnaskóg og yngsta stig fer m.a. í Lystigarðinn, Krossanesborgir, Naustaborgir og nágrenni skólans. Muna að koma klædd miðað við aðstæður.