Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til miðvikudags, frá 07:45 til 14:30 á fimmtudögum og á föstudögum til klukkan 14:00.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00..

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Glerárvision er komin á YouTube

Sönkeppnin vinsæla, Glerárvision 2019, sem fram fór um síðustu mánaðarmót er kominn YouTube. Hér er hægt að horfa á hana frá upphafi til enda.

Góða skemmtun.

Skólahald fellur niður í allan dag, miðvikudag

Allt skólahald í grunnskólum Akureyrarbæjar, þar með í Glerárskóla, fellur niður í dag, miðvikudaginn 11. desember 2019, vegna veðurs og ófærðar. Glerárskóli verður því lokaður í allan dag. Það sama á við um Frístund skólans.

Kennsla fellur einnig niður í Tónlistarskólanum á Akureyri.

Skólahald fellur niður til hádegis á morgun, miðvikudag

Skólahald í Glerárskóla fellur niður til hádegis á morgun, miðvikudaginn 11. desember 2019.

Staða mála og veðurhorfur verða metnar kl. 10 í fyrramálið og ákvörðun tekin um hvort skólahaldi, og þar með Frístund, verði alfarið aflýst á morgun. Tilkynning um það verður birt fyrir hádegi.

Skólahald fellt niður

Almannavarnir Eyjafjarðar hafa nú mælt með að skólahald verði fellt niður á Akureyri í dag. Skólahald í Glerárskóla fellur því niður frá kl. 13:00 í dag, þriðjudaginn 10.12.2019. Við biðjum forráðamenn að sækja yngri nemendur þar sem færð er orðin erfið. Heimilt er að sækja börnin hvenær sem er fyrir klukkan 13.00. . . . → Lesa..

Þriðji bekkur kóðaði í klukkustund!

Það skilja ef til vill ekki allir þessa fyrirsögn, en nemendurnir í þriðja bekk vissu upp á hár hvað þeir voru að gera. Í morgun . . . → Lesa..

Veðrið framundan

Spáð er leiðinlegu veðri á morgun þriðjudag og einnig á miðvikudaginn. Skýrar verklagsreglur eru um það hvernig grunnskólarnir á Akureyri bregðast við óveðri og ófærð, eins og sjá má hér á heimasíðu skólans og einnig með því að smella hér.

 

Laufabrauð, löggan og slökkviliðið

Þótt spennan væri mikil hjá nemendum í fyrsta til fjórða bekk í morgun náðu þeir að ganga rólega með fallegu laufabrauðskökurnar sínar til steikingar í morgun og til baka aftur í stofuna sína. Engar fréttir bárust af kökum sem brotnuðu en heimildum ber saman um að aldrei hafi verið gerðar jafn góðar kökur.

. . . → Lesa..

Síminn fer í frí

Rétt eins og í öðrum grunnskólum bæjarins verður símafrí í skólanum þessa vikuna, eða frá því kennsla efst mánudaginn 9. desember og þar . . . → Lesa..

Slökkviliðið kemur í heimsókn

Nemendur þriðja bekkjar fá góða gesti í heimsókn á mánudaginn, slökkviliðsmenn frá Slökkviliði Akureyrar. Heimsókn þeirra er liður í eldvarnarátaki sem beint er að þriðju bekkingum um land allt nú á aðventunni.

Það er því engin ástæða til þess að láta sér bregða þótt brunabílar sjáist við skólann á mánudagsmorguninn 😊

Glerárvision í Vikudegi

Í nýjasta Vikudegi er að finna skemmtilega umfjöllun um söngkeppnina Glerárvision, og allt sem henni fylgir og gerir daginn dásamlegan. Hægt er að sjá umfjöllunina með því að smella hér.