Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Þetta verður frábært!

Spennan, eftirvæntingin og gleðin skinu út úr andlitum sjöundubekkinga í morgun þegar þeir mættu í skólann með farangur til næstu fimm daga. Rútubíllinn beið á planinu og á slaginu níu lagði hann af stað heim að Reykjum í Hrútafirði þar sem ævintýrin bíða.

Starfið í skólabúðunum á í öllum aðalatriðum að beinast að sömu markmiðum og starfið í almennum grunnskólum.

Í skólabúðunum er lögð sérstök áhersla á eftirfarandi uppeldis- og félagsleg markmið og að því stefnt:

– að auka samstöðu og efla samvinnu milli kennara og nemenda
– að auka félagslega aðlögun nemenda
– að þroska sjálfstæði nemenda
– að nemendur fáist við áður óþekkt viðfangsefni
– að nemendur kynnist nýju umhverfi og ólíkum lífsmáta
– að örva löngun nemenda til að athuga og rannsaka umhverfið og komast að niðurstöðu
– að auka athyglisgáfu nemenda

Eitt af markmiðum skólabúðanna er að venja nemendur við að búa fjarri foreldrahúsum, sofa á ókunnum stað, sjá um sig, hafa reglu á fötum og farangri sínum og hirða herbergið sitt. Við þetta njóta nemendur tilsagnar kennara síns og starfsfólks skólabúðanna.

Við erum fullviss um að þetta gangi afar vel, eins og yfirleitt.