Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til miðvikudags, frá 07:45 til 14:30 á fimmtudögum og á föstudögum til klukkan 14:00.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00..

Facebook síða Glerárskóla

Félag fagkvenna í heimsókn ásamt RÚV

Í morgun komu konur úr Félagi fagkvenna í heimsókn í skólann til að kynna hinar ýmsu iðngreinar fyrir nemendur í 1.-4.bekk undir kjörorðunum „allir geta orðið það sem þeir vilja“. Fengu krakkarnir að prófa hin ýmsu verkfæri og spreyta sig á þeim. Með í för voru stjórnendur sjónvarpsþáttarins Landans og verður búið til fimm mínútna . . . → Lesa..

Skólaval – innritun nemenda í 1. bekk grunnskóla 2019

Í febrúarmánuði fer fram innritun nemenda sem hefja nám í 1. bekk í grunnskólum Akureyrar haustið 2019. Skila þarf inn umsókn á heimasíðu Akureyrarbæjar, https://akg.esja.com/form/index.php. Á heimasíðu fræðslusviðs, https://www.akureyri.is/is/thjonusta/menntun/skolaval, má finna allar upplýsingar um skólaval á Akureyri.

Hver skóli er einnig með kynningu, opið hús, fyrir foreldra barna sem hefja nám í grunnskóla . . . → Lesa..

Skipulagsdagur og viðtalsdagar

Í dag mánudaginn 28. febrúar er skipulagsdagur í Glerárskóla og þá er frí hjá nemendum. Þriðjudag og miðvikudag eru foreldraviðtöl í skólanum þar sem nemendur mæta með forráðamönnum og fara yfir námsmat vetrarins. Boðið verður upp á vöfflukaffi á þeim dögum. Frístund er opin á þessum dögum.

Glerárskóli í tekur þátt í verkefninu Norden for Alle

Loftslag og loftslagsbreytingar

-áhrif á náttúru okkar-

Nemendur 9. bekkjar Glerárskóla og nemendur 7. – 10. bekkjar Hlíðarskóla munu taka þátt í verkefni á vegum Norden for Alle 9.-11. janúar. Þetta er gagnvirkt kennsluferli . . . → Lesa..

Skólastarf hefst á ný á morgun 4. janúar

Kæru nemendur og forráðamenn!

Við óskum ykkur öllum gleðilegs nýs árs og þökkum fyrir samstarf og samveru á liðnu ári.

Skólastarf hefst á ný í Glerárskóla á morgun, föstudaginn 4. janúar 2019.

Hlökkum . . . → Lesa..

jol2 br

Glerárskóli í Erasmus+ verkefni

Í síðustu viku fengum við í Glerárskóla erlenda gesti í heimsókn. Hjá okkur dvöldu 17 þátttakendur í nýju Erasmus+ verkefni sem við leiðum. Verkefnið heitir: Developing pupils skills og er megin þema þess að efla læsi nemenda í gegnum þjóðsögur. Samstarfsskólar okkar eru í Adana í Tyrklandi, Sevilla á Spáni, Skofja Loka í Slóveníu og . . . → Lesa..

Halldórsmótið í sundi

Hið árlega sundmót á miðstigi, Halldórsmótið, var haldið í gær fimmtudag. Þar etja kappi lið nemenda úr 5.-7.bekkjum. Mikið fjör og háspenna var á mótinu og að lokum stóðu nemendur 6-SLB uppi sem sigurvegarar annað árið í röð. Hér fylgir mynd af sigurvegurum mótsins þeim Elísabetu, Valdísi, Elsu, Dagbjörtu, Gunnellu og Guðmundi.

. . . → Lesa..

2. bekkur hlýtur verðlaun frá Samgöngustofu

Nemendur 2.bekkjar duttu í lukkupottinn þegar þau tóku þátt í leik hjá Samgöngustofu. Þau fengu bókavinning í Jóladagatali Samgöngustofu og voru mjög glöð með það eins og sjá má á myndinni.

2hf

Hátíðar Glerárvision með pompi og prakt

Í morgun lukum við hátíðarvikunni með glæsilegri Glerárvision. Nemendur í 7.-10. bekkjum fluttu sín söng og dansatriði og krakkar í 1.-6. bekkjum voru með skemmtiatriði, að ógleymdri leikskóladeildinni okkar Laut sem kom á svið og söng tvö lög. Það voru nemendur í 7-GÞB sem urðu hlutskörpust eftir tvísýna keppni og í einstaklingskeppni vann Ylfa Rún . . . → Lesa..