Facebook síða Glerárskóla
|
Skrifað 12. 10 2020 Þemadagarnir í síðustu viku heppnuðust vonum framar, en á fimmtudag og föstudag var vikið frá hefðbundnu skólastarfi þegar allir nemendur skólans veltu fyrir sér jafnrétti í sinni víðtækustu mynd og unnu fjölmörg spennandi verkefni undir leiðsögn kennara sinna.
Nemendur á hverju aldursstigi fyrir sig unnu saman, fengu fræðslu og sökktu sér niður mál sem oft . . . → Lesa..
Skrifað 08. 10 2020 Vegna þeirra aðstæðna sem við búum nú við verður breyting á áður auglýstu skipulagi foreldraviðtala miðvikudaginn 21. október.
Nú verða ÖLL SAMTÖL RAFRÆN. Það þýðir . . . → Lesa..
Skrifað 07. 10 2020 Næstu tvo daga, fimmtudag og föstudag, verða þemadagar í Glerárskóla. Hefðbundið skólastarf verður brotið upp og nemendur vinna að margvíslegum verkefnum sem tengjast jafnrétti. Þessa daga lýkur skóladeginum klukkan 13.00. Frístund er opin fyrir skráða nemendur frá þeim tíma.
Skrifað 06. 10 2020 Fræðandi fyrirlesarar eru auðfúsugestir. Þeir opna augu okkar fyrir hlutum við höfum ef til vill ekki leitt hugann að.
Á föstudaginn kom Stefanía Sigurdís Jóhönnudóttir . . . → Lesa..
Skrifað 01. 10 2020 Nýhafinn október er plastlaus mánuður hjá okkur í Glerárskóla. Þetta er að tillögu öflugrar umhverfisnefndar skólans sem nemendur skipa. . . . → Lesa..
Skrifað 29. 09 2020 Á morgun, miðvikudaginn 30. september lýkur skóla hjá nemendum í 5. til 10. bekk kl. 13:00. Þá setjast kennarar á skólabekk í annað skiptið af þremur vegna verkefnisins Læsi fyrir lífið sem Glerárskóli tekur þátt í næstu tvö árin.
Verkefnið hjálpar okkur að efla nemendur til náms með lestri og víðsýni í öllum námsgreinum sem . . . → Lesa..
Skrifað 28. 09 2020 Það eru ekki alveg allir sem átta sig á rúmfræði þegar hún er fyrst kynnt fyrir þeim. Þess vegna er fínt að hafa . . . → Lesa..
Skrifað 25. 09 2020 Það var aldeilis líf í Boganum í morgun, en þar kepptu nemendur á unglingastigi í fótbolta. Allir grunnskólar Akureyrar tóku þátt í mótinu og sýndu eftirtektarverð tilþrif. Svona keppni er tekin alvarlega með töflufundum og hvaðeina.
Skrifað 23. 09 2020 Það voru allir viðbúnir æfingunni þegar brunabjallan glumdi á slaginu 8:30 í morgun. Nemendur skipuðu sér í raðir inn í skólastofunum, . . . → Lesa..
Skrifað 22. 09 2020 Á morgun, miðvikudaginn 23. september n.k. verður rýmingaræfing í Glerárskóla í fyrsta tíma skóladagsins. Nemendur fara inn í stofur þegar þeir mæta í skólann á skóm og með úlpur, þar er tekið manntal og síðan fer brunaboðinn af stað. Þá æfa nemendur þau handtök sem þarf þegar hætta er á ferð og rýma skólann samkvæmt . . . → Lesa..
|
|