Síðdegis í dag, þriðjudaginn 17. nóvember 2020, kom ný og endurbætt reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttarinnar. Enn á eftir að ganga frá nokkrum lausum endum varðandi framkvæmd hennar sem vonandi tekst að gera á morgun en ekki er gert ráð fyrir miklum breytingum hjá okkur fyrst um sinn.
Nemendur í 1. – 7. bekk þurfa ekki lengur að nota andlitsgrímur og fjarlægðatakmörk hjá þeim verða engin. Nemendur í 8. – 10. bekk þurfa að hafa 2. metra sín á milli en að öðrum kosti að nota andlitsgrímur.
Tíma þarf til að skipuleggja skólastarfið upp á nýtt og til að færa það til móts við þessa nýju reglugerð hefur eftirfarandi verið ákveðið:
- Morgundagurinn, miðvikudagurinn 18. nóvember, verður óbreyttur í skólastarfi Glerárskóla.
- Skipulag unglingastigs verður óbreytt út þessa viku. Upplýsingar verða sendar um leið og nýtt skipulag lítur dagsins ljós.
- Skipulag í 5. – 7. bekk verður sent út um leið og það er tilbúið en gert er ráð fyrir að nemendur í 7. bekk mæti allir í skólann, fimmtudaginn 19. nóvember, og gangi þá inn um aðalinngang skólans, inn í D-álmu og inn í sínar heimastofur.
- Mætingartími nemenda í skólann er óbreyttur á morgun.
Verum áfram dugleg að minna hvert annað á 2. metra regluna, handþvott/sprittun og andlitsgrímur þegar á þarf að halda.
Við siglum enn í ólgusjó og verðum að halda áfram að styðja hvert annað í leik og starfi, sýna umburðarlyndi og æðruleysi eins og við höfum gert hingað til.
Í sameiningu tekst okkur að kljúfa þá tinda sem framundan eru. Takk fyrir skilninginn.
Góðar kveðjur frá stjórnendum Glerárskóla, Eyrúnu, Helgu og Tómasi Lárusi.