Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til miðvikudags, frá 07:45 til 14:30 á fimmtudögum og á föstudögum til klukkan 14:00.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00..

Facebook síða Glerárskóla

Niðurlút tré

Sum trén á skólalóðinni eru örlítið niðurlút eftir norðanáhlaupið síðustu daga og eitt fallegasta jólatréð okkar ákvað að leggjast niður og safna kröftum meðan önnur . . . → Lesa..

Skólahald með hefðbundnu sniði á morgun, fimmtudag

Skólahald verður í öllum skólum bæjarins á morgun, fimmtudag 12.12.2019, samkvæmt dagskrá.

Veðrið virðist ganga hægar niður en spáð var og því hefur gengið hægar að hreinsa götur bæjarins. Framkvæmdamiðstöð reiknar með að moka fram á kvöld og hefja mokstur kl. 4 í fyrramálið. Veðurspáin hljóðar upp á 13-18 m/s og él og því má . . . → Lesa..

Glerárvision er komin á YouTube

Sönkeppnin vinsæla, Glerárvision 2019, sem fram fór um síðustu mánaðarmót er kominn YouTube. Hér er hægt að horfa á hana frá upphafi til enda.

Góða skemmtun.

Skólahald fellur niður í allan dag, miðvikudag

Allt skólahald í grunnskólum Akureyrarbæjar, þar með í Glerárskóla, fellur niður í dag, miðvikudaginn 11. desember 2019, vegna veðurs og ófærðar. Glerárskóli verður því lokaður í allan dag. Það sama á við um Frístund skólans.

Kennsla fellur einnig niður í Tónlistarskólanum á Akureyri.

Skólahald fellur niður til hádegis á morgun, miðvikudag

Skólahald í Glerárskóla fellur niður til hádegis á morgun, miðvikudaginn 11. desember 2019.

Staða mála og veðurhorfur verða metnar kl. 10 í fyrramálið og ákvörðun tekin um hvort skólahaldi, og þar með Frístund, verði alfarið aflýst á morgun. Tilkynning um það verður birt fyrir hádegi.

Skólahald fellt niður

Almannavarnir Eyjafjarðar hafa nú mælt með að skólahald verði fellt niður á Akureyri í dag. Skólahald í Glerárskóla fellur því niður frá kl. 13:00 í dag, þriðjudaginn 10.12.2019. Við biðjum forráðamenn að sækja yngri nemendur þar sem færð er orðin erfið. Heimilt er að sækja börnin hvenær sem er fyrir klukkan 13.00. . . . → Lesa..

Þriðji bekkur kóðaði í klukkustund!

Það skilja ef til vill ekki allir þessa fyrirsögn, en nemendurnir í þriðja bekk vissu upp á hár hvað þeir voru að gera. Í morgun . . . → Lesa..

Veðrið framundan

Spáð er leiðinlegu veðri á morgun þriðjudag og einnig á miðvikudaginn. Skýrar verklagsreglur eru um það hvernig grunnskólarnir á Akureyri bregðast við óveðri og ófærð, eins og sjá má hér á heimasíðu skólans og einnig með því að smella hér.

 

Laufabrauð, löggan og slökkviliðið

Þótt spennan væri mikil hjá nemendum í fyrsta til fjórða bekk í morgun náðu þeir að ganga rólega með fallegu laufabrauðskökurnar sínar til steikingar í morgun og til baka aftur í stofuna sína. Engar fréttir bárust af kökum sem brotnuðu en heimildum ber saman um að aldrei hafi verið gerðar jafn góðar kökur.

. . . → Lesa..

Síminn fer í frí

Rétt eins og í öðrum grunnskólum bæjarins verður símafrí í skólanum þessa vikuna, eða frá því kennsla efst mánudaginn 9. desember . . . → Lesa..