Almannavarnir Eyjafjarðar hafa nú mælt með að skólahald verði fellt niður á Akureyri í dag.
Skólahald í Glerárskóla fellur því niður frá kl. 13:00 í dag, þriðjudaginn 10.12.2019. Við biðjum forráðamenn að sækja yngri nemendur þar sem færð er orðin erfið. Heimilt er að sækja börnin hvenær sem er fyrir klukkan 13.00.
Einnig bendum við á að Frístund verður lokuð í dag vegna veðursins.
Upplýsingar um skólahald á morgun koma væntanlega síðar í dag.