Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til miðvikudags, frá 07:45 til 14:30 á fimmtudögum og á föstudögum til klukkan 14:00.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00..

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Þvílík tilþrif!

Hann var heldur betur tilþrifamikill leikurinn sem fram fór í morgun, þegar nemendur í tíunda . . . → Lesa..

Útikennsla er skemmtileg!

Sumarið er komið og nemendur Glerárskóla njóta útikennslu í góða veðrinu. Það sama á við um krakkana í Frístund. Þeir notuðu tækifærið á þriðjudaginn þegar það var starfsdagur . . . → Lesa..

Löng helgi framundan

Hvítasunnuhelgin er framundan og í framhaldi af henni verður skipulagsdagur í Glerárskóla þriðjudaginn 25. maí en Frístund verður opin fyrir skráð börn. Hefðbundin kennsla hefst miðvikudaginn 26. maí. Þá sjáumst við öll með bros á vör.

Hetjur hafsins!

Nemendur í sjötta bekk skelltu sér á sjóinn í vikunni. Þeir fóru út með Húna II og áttu frábæra stund með fulltrúum Hollvinasamtaka Húna og sérfræðinga frá Háskólanum á Akureyri.

Ferðin var . . . → Lesa..

Stelpur og tækni

Undanfarin ár hefur stúlkum í 9. bekk gefist kostur á að kynna sér margvísleg störf sem kalla á sérhæfða tæknikunnáttu. Um er að ræða verkefnið Stelpur og tækni en markmið þess er . . . → Lesa..

Nemendur funda með jafnöldrum sínum í útlöndum

Þeir nemendur í 6.-8. bekk sem taka þátt í Erasmus+ verkefninu „Be a Shield Around the World“ funduðu á dögunum með jafnöldrum sínum í samstarfsskólunum okkar í Danmörku, Austurríki, Rúmeníu, Ítalíu og . . . → Lesa..

Valgreinar næsta vetur

Kominn er upp hlekkur á heimasíðu skólans með upplýsingum um þær valgreinar sem standa nemendum . . . → Lesa..

Engin skóli á fimmtudag og föstudag

Á morgun, fimmtudag, er uppstigningardagur sem er almennur frídagur og þá verður enginn skóli. Á föstudag verður skipulagsdagur í Glerárskóla og engin kennsla. Nemendur mæta því næst í skólann mánudaginn 17. maí. Sjáumst þá eftir góða og langa helgi.

Listasafnið er lokkandi

List er hvetjandi fyrir skapandi hugsun og sakapandi hugsun er forsenda framfara á flestum sviðum samfélagsins. Þess vegna er mikilvægt fyrir nemendur Glerárskóla að geta skroppið með kennurum sínum í Listasafnið á . . . → Lesa..

Árangursrík iðjuþálfun

Þeir Arnar Máni og Máni hafa undanfarnar vikur saumað tuskur fyrir Öldrunarheimili Akureyrar úr lélegum handklæðum. Það var hluti af iðjuþjálfun þeirra í Glerárskóla þar sem meðal annars er unnið með valdeflingu, áhuga og styrkleika barnanna.

Í dag fóru þeir og afhentu afraksturinn. Vel gert strákar!