Í gær var dagur íslenskrar tungu og þá var ýmislegt gert hér í skólanum. Sjónvarpsþátturinn Kappsmál var í stóru hlutverki, nemendur ýmist horfðu á valda þætti eða endursköpuðu þáttinn í skólastofunni. Allir fengu að búa til þrautir samkvæmt forskrift þáttarins, svara og vera áhorfendur „í sal.“
Í dag tengdi Ævar Þór Benediktsson rithöfundur sig við alla bekki miðstigs, ræddi við krakkana og las fyrir þau brot úr nýútkominni bók sinni sem ber heitið Þín eigin ráðgáta.