Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til miðvikudags, frá 07:45 til 14:30 á fimmtudögum og á föstudögum til klukkan 14:00.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00..

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Nemendum boðið í Hlíðarfjall!

Miðvikudaginn 10. febrúar 2021 er nemendum í Glerárskóla boðið í Hlíðarfjall.

Sumir fara á bretti, aðrir á svigskíði, enn aðrir á gönguskíði og svo mega nemendur taka með sér snjóþotur og sleða. Gönguferð verður í boði fyrir þá sem það kjósa.

Þeir sem ekki eiga búnað geta fengið hann lánaðan í Hlíðarfjalli. Ekki verður hægt . . . → Lesa..

Sérstakur frístundastyrkur vegna Covid-19

Vegna Covid-19 gefst nú kostur á að sækja um sérstakan styrk upp á 45.000 krónur vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna sem fædd eru á árunum 2005-2014 og búa á heimilum þar sem heildartekjur framfærenda voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu. Sækja þarf um styrkinn fyrir 1. mars næstkomandi.

Allar nánari . . . → Lesa..

Spennan vex

Spennan vegna Glerárvision fer vaxandi innan skólans. Flestir bekkir eru búnir að ákveða atriðið sitt og farnir að leggja drög að danssporum og sviðsframkomu.

Búið . . . → Lesa..

Keypti Hlíðarfjall!

Nemandi í Glerárskóla gerði sér litið fyrir og keypti Hlíðarfjall í morgun. Nokkrar götur bæjarins skiptu einnig um eigendur en menningarhúsið Hof er enn þá . . . → Lesa..

Glæsileg innkoma í Krakkafréttir

Nemendur í 6. og 7. bekk Glerárskóla áttu glæsilega innkomu í Krakkafréttum sjónvarpsins. Þar tjáðu þau sig um það sem þeim finnst skemmtilegast að gera, allt frá því að skreyta piparkökur, renna sér á skíðum og horfa á sjónvarpið.

Það er skoðum margra að krakkafréttir hafi sjaldan verið betri. Hér er hægt að horfa á . . . → Lesa..

Glerárskóli í Krakkafréttum

Það er fátt betra í 13 gráðu frosti en að taka upp atriði fyrir Krakkafréttir. Þessi mynd var tekin núna í morgun og afraksturinn af morgunvinnunni má sjá í sjónvarpinu í kvöld, fimmtudagskvöldið 28. janúar, klukkan 18:50.

Skipulagsdagur og foreldraviðtöl

Mánudagurinn 25. janúar er skipulagsdagur í Glerárskóla og í kjölfarið koma tveir viðtalsdagar. Kennsla hefst síðan samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 28. janúar.

Drottningarbragð!

Skákáhugi hefur aukist í Glerárskóla í vetur, einkanlega hjá stúlkunum sem gjarnan sitja við skákborið og beita drottningarbragðinu. Væntanlega eru þetta áhrif . . . → Lesa..

Nemandi Glerárskóla hannaði merki fyrir Erasmus+ verkefni

Glerárskóli hefur verið virkur þátttakandi í Erasmus+, styrkjaáætlun ESB . . . → Lesa..

Glerárvision verður 16. febrúar

Við látum ástandið í samfélaginu ekki stöðva Glerárvision. Keppnin hefði reyndar átt að fara fram í lok haustannarinnar en ákveðið var að fresta henni fram yfir áramót og stóri dagurinn verður 16.febrúar.

. . . → Lesa..