Vegna Covid-19 gefst nú kostur á að sækja um sérstakan styrk upp á 45.000 krónur vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna sem fædd eru á árunum 2005-2014 og búa á heimilum þar sem heildartekjur framfærenda voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu. Sækja þarf um styrkinn fyrir 1. mars næstkomandi.
Allar nánari upplýsingar um styrkinn og umsóknarferlið má sjá hér. Þar eru einnig upplýsingar um árlegan frístundastyrk Akureyrarbæjar sem nú er 40.000 krónur.