Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til miðvikudags, frá 07:45 til 14:30 á fimmtudögum og á föstudögum til klukkan 14:00.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00..

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Litlu jólin

Litlu jólin voru haldin hátíðleg í skólanum 19. og 20. desember. Þau voru hefðbundin að venju, jólasögur, leikir og dansað í kringum jólatré og jólalögin sungin. Sannkölluð hátíðarstund.

20171219_201018 . . . → Lesa..

Halldórsmótið í sundi

Eins og sést var mikið um að vera í morgun. Hjá miðstiginu var hið árlega Halldórsmót í sundi þar sem bekkirnir á miðstigi keppa sín á milli. Mótið var gríðarlega spennandi og mikil stemming. Hvatningsliðin studdu vel við bakið á sínum bekkjarfélögum og að lokum voru það krakkarnir í 5-SLB sem stóðu uppi sem sigurvegarar.

. . . → Lesa..

Félagsvist á unglingastigi

Í morgun, á síðsta degi hefðbundins skólastarfs, var uppbrot hjá unglingunum og þeir spiluðu félagsvist á mörgum borðum. Líf og fjör og þau sem báru sigur úr býtum voru þau Marta Bríet Aðalsteinsdóttir og Alexander Elí Sigvaldason.

. . . → Lesa..

1. bekkur

Börnin í fyrsta bekk hafa ekki setið auðum höndum í nóvember og desember. Sem dæmi er; göngutúr í Glerárkirkju, til að heyra hvers vegna við kveikjum á kertum á aðventunni; strætógöngutúr í Hof til að syngja með öllum hinum krökkunum lögin um Akureyri; önnur ferð í Hof til að hlusta á sönghópinn Norðurljósin (ljósin í . . . → Lesa..

Peningagjöf til bókasafnsins

20171212_104354Gjaldkeri Foreldrafélags Glerárskóla kom færandi hendi í dag, sama dag og fyrsti jólasveinninn, með peningagjöf til safnsins . . . → Lesa..

Laufabrauðsgerð

Yngsta stigið heldur í gamlar hefðir og sker út laufabrauð. Þar fá listrænir hæfileikar að njóta sín og síðan voru kökurnar steiktar í matreiðslustofunni.

20171211_085320 . . . → Lesa..

Unglingarnir á þjóðfundi og ungmennaþingi UNICHEF

10. bekkingum bæjarins var boðið á þjóðfund í dag þann 1. des í Háskólanum á Akureyri. Þar voru jafnréttismál til umfjöllunar. Krakkarnir tóku þátt í vinnu í hópum þar sem þau ræddu saman um jafnréttismál í sinni víðustu mynd. Þegar fundinum var lokið voru 17. nemendur valdir til að hringja Íslandsklukkunni 17. sinnum. Hópur nemenda . . . → Lesa..

Útvarp Glerárskóli FM 105,5

20171128_101248br 20171128_101255br . . . → Lesa..

Jólaföndur foreldrafélags og bekkjaráða Glerárskóla

Siðastliðinn laugardag var jólaföndur á vegum foreldrafélags skólans og bekkjaráðanna. Góð mæting og mikið föndrað og þökkum þeim aðstandendum sem mættu og drifu föndrið áfram með mikilli gleði og ánægju eins og sjá má á myndunum. Fleiri myndir á Facebook-síðu Glerárskóla

. . . → Lesa..

Glerárvision

20171127_113942Í dag fór fram hin árlega hæfileika og söngskemmtunin Glerárvision. Þar sýndu á sviði nemendur úr 7.-10. bekk auk þess sem aðrir nemendur skemmtu inn á milli. Að þessu sinni voru það nemendur úr 8 – SM sem sigruðu keppnina og óskum við þeim til hamingju.