Facebook síða Glerárskóla
|
Skrifað 03. 05 2016 Núna þessa vikuna eru 4 nemendur og 3 starfsmenn í Litháen, Katyciai í tengslum við Erasmus + verkefnið okkar. Hægt er að fylgjast með ferðalöngunum á fésbókarsíðu skólans. Verkefnið er einnig með hópsíðu á fésbókinni, þar sem hægt er að fylgjast með verkefninu.
. . . → Lesa..
Skrifað 27. 04 2016 Árlega tilnefna börn á aldrinum sex til fimmtán ára bestu barnabækur ársins. Tilnefningarnar fara fram í grunnskólum og bókasöfnum um allt land.
Nemendur Glerárskóla hafa alltaf verið duglegir að taka þátt og tilnefna þær bækur sem þeir telja eiga skilið að hljóta viðurkenningu. Veitt eru þátttökuverðlaun í hverjum skóla sem Barnabókavörður Amtsbókasafnsins hefur umsjón með. . . . → Lesa..
Skrifað 26. 04 2016 Í morgun fór fram árleg spurningakeppni miðstigs. Mikill keppnisandi var meðal liðanna og hart tekist á, eins og ávallt. Það fór þó svo að 7. bekkur hafði 6. JIE eftir jafna og æsispennandi keppni sem endaði í bráðabana. Í þriðja sæti var 5. bekkur og í því fjórða 6. TLV.
. . . → Lesa..
Skrifað 22. 04 2016 Í tilefni þess að Tónlistarskólinn á Akureyri er 70 ára á þessu ári, voru haldnir tónleikar fyrir nemendur Glerárskóla síðastliðinn miðvikudag. Nokkrar myndir eru frá tónleikunum á myndasíðu Glerárskóla.

Skrifað 06. 04 2016 Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk verður haldin í dag, miðvikudaginn 6. apríl, . . . → Lesa..
Skrifað 05. 04 2016 Dagana 9. -15. apríl dvelja 29 nemendur úr Gilja-, Glerár og Síðuskóla í Aarhus í Danmörku. Þetta eru nemendur sem hafa verið í dönskuvali í vetur. Með í för eru þrír dönskukennarar, þær Kristín List Malmberg úr Síðuskóla, Sigríður Hreinsdóttir úr Glerárskóla og Steinunn Kristín Bjarnadóttir úr Giljaskóla. Verkefnið er fjármagnað af Nordplus-Junior.
Valgreinin hófst . . . → Lesa..
Skrifað 18. 03 2016 Nú er glæsilegri árshátíðarviku lokið og nemendur farnir í páskafrí.
Kennsla hefst að loknu páskafríi þriðjudaginn 29. mars 2016 samkvæmt stundarskrá.
Skrifað 14. 03 2016 Útvarp Glerárskóla verður starfandi í dag mánudag, þriðjudag og miðvikudag núna í árshátíðarviku.
Tími útsendingar verður frá kl. 8:00 – 19:00 . . . → Lesa..
Skrifað 14. 03 2016 Á föstudögum er 3. bekkur í úti- og grenndarkennslu. Þá er . . . → Lesa..
Skrifað 09. 03 2016 Allir velkomnir
Miðvikudaginn 16. mars eru tvær árshátíðarsýningar í Glerárskóla.
Kennsla er til kl. 13:15. Sýningar verða kl. 17:00 og kl. 19:30. Hvor sýning tekur u.þ.b. eina og hálfa klukkustund. Verð á sýningar er kr. 500 fyrir börn á grunnskólaaldri, kr. 800 fyrir fullorðna og frítt er fyrir börn undir skólaaldri. Við mælum ekki . . . → Lesa..
|
|