Á miðvikudaginn er skipulagsdagur í skólanum. Þá er frí hjá nemendum og opið í Frístund fyrir þau börn sem hafa verið skráð á þann dag.
|
|
||
|
Á miðvikudaginn er skipulagsdagur í skólanum. Þá er frí hjá nemendum og opið í Frístund fyrir þau börn sem hafa verið skráð á þann dag. Í október kom Marit Törnqvist og heimsótti unglingastig Glerárskóla. Hún lærði myndskreytingar í Gerrit Rietveld listaskólanum í Amsterdag og hefur myndskreytt fjölmargar bækur eftir Astrid Lindgren og hlotið ýmis verðlaun og viurkenningar á ferlinum. Á fyrirlestrinum rakti hún sögu sína og útskýrði hvernig myndsköpun hennar verður til. Hún sagði að það væri eins og að . . . → Lesa.. Á morgun, þriðjudag, er viðtalsdagur í skólanum, þar sem kennarar, nemendur og foreldrar fara yfir námsframvindu nemenda og önnur mál sem snerta nemandann og skólagönguna. Mjög mikilvægir fundir þar sem einnig verður farið yfir skjöl sem tengjast nýjum persónuverndarlögum Annað árið í röð býður Tónlistarskólinn á Akureyri upp á Söngvaflóð í samvinnu við grunnskólana á Akureyri. Söngvaflóð er fyrir 1. -8. bekk og kemur tónlistarkennari í skólann einu sinni í viku. Þá hefst samsöngur nemenda en einn til tveir árgangar sækja Söngvaflóðið saman og fer kennslan fram í matsal. Kennarar fylgja síðan söngnum eftir . . . → Lesa.. Í dag fór fram hið árlega skólahlaup Gleárskóla undir merkjum ÍSÍ. Góð þátttaka, gleði og metnaður réði þar ferð og fóru jafnt háir sem lágir góðan hring í hverfinu og komu sveittir og glaðir á leiðarenda. Verðlaun voru veitt fyrir fyrstu þrjú sæti hjá stúlkum og drengjum á öllum stigum, en . . . → Lesa.. Rannís veitti 34 skólaverkefnum Erasmus+ styrk nú á dögunum og hlaut Glerárskóli styrk fyrir verkefnið “Developing pupils skills”. Verkefnið verður unnið í samstarfi við skóla í Tyrklandi, Slóveníu, Litháen og Spáni og er áætlað að það taki tvö ár. Markmið verkefnisins er að þjálfa nemendur á aldrinum 11-16 ára í læsi í gegnum sögu, sögugerð . . . → Lesa.. |
||
|
© 2026 Glerárskóli
Glerárskóli v/ Höfðahlíð, 603 Akureyri Frístund s.461-1253, senda póst
Skólastjóri: Eyrún Skúladóttir, senda póst
|
||