Í næstu viku er árshátíð Glerárskóla og þá eru allir velkomnir. Hér að neðan eru upplýsingar um hátíðina.
Miðvikudaginn 10.apríl eru tvær árshátíðarsýningar í Glerárskóla.
Kennsla er til kl. 13:15. Sýningar verða kl. 17:00 og kl. 19:30. Hvor sýning tekur u.þ.b. eina og hálfa klukkustund. Verð á sýningar er kr. 500 fyrir börn á grunnskólaaldri, kr. 800 fyrir fullorðna,
frítt er fyrir börn undir skólaaldri. ( Ekki posi). Við mælum ekki með því að foreldrar taki ung börn með sér á sýningarnar. Vakin er athygli á því að þeir nemendur sem eru að sýna hafa þegar séð atriðin á undan og eftir sínu atriði á general prufu.
Árshátíðaratriði 2019:
1. bekkur: Söngur
3. bekkur: Dans
5. IB: Bekkjarhittingur árið 2094
5. KJ: Eurovisin
7. GS: Kemur í ljós!!
7. GÞB: Framtíðin
9. bekkur: Lína langsokkur.
Fimmtudaginn 11. apríl er ein árshátíðarsýning og Árshátíðarball Glerárskóla.
Kennsla er til kl. 13:15. Sýning er kl. 15:30. Verð á sýningu er kr. 500 fyrir börn á grunnskólaaldri, kr. 800 fyrir fullorðna og frítt er fyrir börn undir skólaaldri. (Ekki posi).
Árshátíðarball fyrir nemendur í 1.- 4. bekk hefst kl. 17:45 í íþróttahúsi og stendur til kl.18:45. Ókeypis er á ballið. Bland í poka kostar 250 kr. og drykkur kr. 100.
Árshátíðarball fyrir nemendur í 5. – 10. bekk hefst kl. 20:00. Því lýkur hjá 5.- 6. bekk kl. 21:30,
7. bekk kl. 22:00 og hjá 8. – 10. bekk kl. 23:30.
Verð fyrir 5. – 7. bekk er kr. 700 en kr. 1500 fyrir 8.-10. bekk.
Nemendur í 5. bekk mega velja á hvort ballið þeir fara. Munið snyrtilegan klæðnað !
Allur ágóði sýninga og árshátíðar fer í að greiða niður skólaferðalög og vettvangsferðir nemenda.
Við viljum benda forráðamönnum á að meðan á sýningu stendur er óæskilegt að vera með ráp inn og út út íþróttasal. Sýnum nemendum virðingu og fylgjumst með sýningunni af áhuga J
ATH. að í ár verður engin kaffisala/kökuhlaðborð á vegum nemenda
Föstudaginn 12. apríl er skóladagur í Glerárskóla.
Kennsla hefst kl.10:00 og er samkvæmt stundarskrá eftir það. Að skóla loknum á föstudeginum hefst páskafrí nemenda.
Frístund verður opin fyrir alla nemendur frá 1. – 4. bekk ef þeir óska að kom á milli klukkan 8:00-10:00 eða þar til kennsla hefst. Ekki þarf að skrá fyrirfram.
Kennsla hefst að loknu páskafríi þriðjudaginn 23. apríl 2019 samkvæmt stundarskrá.