Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Haustfrí og fleira

Nú er að koma að haustfríi kennara og nemenda en það er dagana 23. og 26. október.

Í framhaldi af því verður skipulagsdagur þriðjudaginn 27. október og þá er frí hjá nemendum, Frístund er líka lokuð þennan dag.

Miðvikudaginn 28. október er viðtalsdagur kennara, forráðamanna og nemenda í 1.-10. bekk.

Nemendur 10.bekkjar verða með kökuhlaðborð . . . → Lesa..

Glerárskóli og Erasmus+ styrkur

Glerárskóli sótti síðasliðið vor um að vera þátttakandi í Erasmus+ verkefni ásamt 6 öðrum löndum. Erasmus+ er verkefni á vegum Evrópusambandsins og var áður kallað Comeniusarverkefni. Svo skemmtilega vildi til að styrkumsóknin var samþykkt og erum við því að fara af stað með verkefni til tveggja ára sem nefnist: ,,United We Play, United We Win: . . . → Lesa..

Fótboltamót í Boganum

DSCN4238

Fótboltamót grunnskóla Akureyrar fór fram 30.september, í Boganum. Nemendur 8.-10.bekkjar kepptu innbyrðis og spilaðir voru 63 leikir á rétt rúmum fjórum klukkutímum. Mótið . . . → Lesa..

Stop motion verkefni í 8. bekk

8. bekkur hefur verið að vinna í námslotu um náttúruna og umhverfið núna í haust.

Meðal annars voru skoðaðar þjóðsögur sem tengjast efninu og var áherslan lögð á tröllasögur. Nemendur lásu tröllasögur og gerðu svo stuttmynd upp úr henni og notuðu til þess app í símum eða spjaldtölvum sem kallast Stop Motion. Útkoman var virkilega . . . → Lesa..

Skipulagsdagur 2. október

Föstudaginn 2. október er skipulagsdagur í skólanum og því frí hjá nemendum. Minnum einnig á að Frístund er lokuð.

Kennarar munu sækja haustþing BKNE sem haldið er 2. október.

Frímínútur 30. sept

Regnbogi 30. september 2015

Regnbogi 30. september 2015

Myndir frá Reykjaferð 7. bekkjar

Hérna eru nokkrar myndir sem teknar voru í ferð 7. bekkjar á Skólabúðirnar að Reykjum 7.-11. september.

20150910_134848

7. bekkur á Reykjum