Fótboltamót grunnskóla Akureyrar fór fram 30.september, í Boganum. Nemendur 8.-10.bekkjar kepptu innbyrðis og spilaðir voru 63 leikir á rétt rúmum fjórum klukkutímum. Mótið gekk vel fyrir sig og stóðu nemendur sig með miklum sóma.
Glerárskóli átti lið í öllum árgöngum bæði hjá stelpum og strákum og unnust margir leikir, aðrir fóru jafntefli og sárafáir töpuðust.