Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til miðvikudags, frá 07:45 til 14:30 á fimmtudögum og á föstudögum til klukkan 14:00.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00..

Facebook síða Glerárskóla

Ys og þys í árshátíðarviku

Það er heldur betur mikið um að vera hjá okkur þessa dagana. Skólinn er kominn í hátíðarbúning og krakkarnir tilbúin með atriðin sín eftir stíft æfingatímabil.

Á meðfylgjandi mynd má sjá krakka úr 9. bekk sem heimsóttu leikskólann Klappir og sungu fyrir þau nokkur lög úr leikritinu Latibær sem einmitt er aðalverk árshátíðarinnar okkar.

Í dag, miðvikudag eru tvær sýningar. Sú fyrri er klukkan 17.00 og sú seinni klukkan 19.30. Aðgangseyrir fyrir leikskólabörn er 500 krónur, aðrir greiða 1000 krónur fyrir miðann.

Góða skemmtun.