Vorhátíð Glerárskóla fer fram föstudaginn 20. maí 2016 frá klukkan 11-13
Ýmislegt verður á boðstólnum og má þar nefna:
- Sýning á verkum nemenda inni í skóla.
- Hoppukastali á skólalóðinni.
- Ís gefinn af Foreldrafélaginu með hádegismatnum en boðið verður uppá grillaðar pylsur og svala.
- Tombóla verður í stofu A7 og miðinn kostar 100 kr. enginn posi!
- Boðið verður uppá andlitsmálun.
- Dýrin í Hálsaskógi láta sjá sig á ýmsum stöðum.
- Slökkviliðið á Akureyri stefnir á að koma til okkar ef aðstæður leyfa.
- Lögreglan stefnir á að skoða hjól fyrir nemendur og mega fyrstu bekkingar koma á hjólum þennan dag
í fylgd með foreldrum. - Ýmis útileikföng verða á skólalóðinni þennan dag og má þar nefna
sápukúlur, frisbídiskar, boltar og fleira.
Komum saman og höfum gaman,
allir í Glerárskóla.