Glerárskóli

Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til miðvikudags, frá 07:45 til 14:30 á fimmtudögum og á föstudögum til klukkan 14:00.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Facebook síða Glerárskóla

Vorhátíð á morgun

Vorhátíð Glerárskóla og Foreldrafélags Glerárskóla verður haldin á morgun, föstudaginn 29. maí, kl. 11:30 – 13:00. Í boði verður að taka þátt í alls kyns skemmtun s.s. andlitsmálningu, krítarteikningu, fullt af skemmtilegum leikjum og þrautum, sápukúlugerð og pílukasti svo eitthvað sé nefnt. Grillaðar verða pylsur og boðið upp á ís í eftirrétt.

Foreldrar og forráðamenn nemenda eru hvattir til að koma gangandi eða hjólandi þar sem takmörkuð bílastæði eru við skólann.