Á morgun fimmtudaginn 26. október er viðtalsdagur hér í skólanum og af því tilefni ætla nemendur í 10.bekk og forráðamenn þeirra að vera með vöfflukaffi til sölu á bókasafninu í Glerárskóla meðan á viðtölum stendur.
Vaffla með sultu/súkkulaði (án hnetu) og rjóma ásamt kaffi/djús kostar 700.-kr. og rennur óskipt í ferðasjóð bekkjarins. Hægt er að greiða með peningum eða AUR appinu.