Það var afskaplega mikið að gera hjá nemendum á föstudaginn og verkefnin voru fjölbreytt og spennandi.
Krakkarnir í fjórða bekk hafa verið að stúdera sólkerfið og til þess að átt sig betur á óravíddum geimsins og fjarlægðum milli pláneta sólkerfisins minnkuðu nemendurnir sólkerfið og teiknuðu það upp í réttum hlutföllum á skólalóðinni.
Þriðji bekkur lagði áherslu á náttúrufræði og sjósókn. Í heimsókn niður í Bót fengu þau margvíslegan fróðleik um fiska og sýnikennslu í því hvernig gert er að fiski og hann flakaður.
Unglingastigið fór eins og það lagði sig í spennandi heimsókn í varðskipið Þór. Þar var tekið vel á móti þeim og þau leidd um þetta stærsta og glæsilegasta skip Landhelgisgæslunnar sem heimsótti Akureyri vegna 100 ára afmælis gæslunnar.




