Á morgun, þriðjudaginn 13. febrúar, lýkur kennslu klukkan 12.00 og við tekur vetrarfrí. Frístund verður opin á morgun fyrir þau börn sem skráð eru. Hádegismatur verður í boði á morgun og nemendur eru hvattir til að koma og borða á gat enda er sprengidagur og snillingarnir í eldhúsinu reiða fram saltkjöt og baunir!
Vetrarfríið varir út vikuna og kennsla hefst samkvæmt stundaskrá mánudaginn 19. febrúar.