Það má sannarlega segja að veðrið hafi leikið við nemendur og starfsfólk Glerárskóla í dag. Það var víða farið á útivistardeginum okkar og við þökkum fyrir vindinn sem geði það bærilegt fyrir okkur að vera við leiki og störf úti í yfir 20 stiga hita.
Allor skemmtu sér konunglega, hvar svo sem þeir voru. Miðstigið gekk í Krossanesborgir ásamt nemendum í þriðja bekk þar sem gengið var um, fræðst um náttúruna.
Nemendur á unglingastigi voru við margvíslega leiki í Kjarnaskógi og yngstu nemendur skólans voru ýmist að kanna næsta nágrenni skólans, skoða Lystigarðinn eða spreyta sig á ratleik í Naustaborgum.
Já, þetta var skemmtilegur dagur!
Fleiri myndir má sjá á Facebook síðu skólans.