Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Valgrein í dönsku

Dagana 9. -15. apríl dvelja 29 nemendur úr Gilja-, Glerár og Síðuskóla í Aarhus í Danmörku. Þetta eru nemendur sem hafa verið í dönskuvali í vetur. Með í för eru þrír dönskukennarar, þær Kristín List Malmberg  úr Síðuskóla, Sigríður Hreinsdóttir úr Glerárskóla og Steinunn Kristín Bjarnadóttir úr Giljaskóla.  Verkefnið er fjármagnað af Nordplus-Junior.

Valgreinin hófst með heimsókn nemenda úr Börnenes Friskole í Aarhus til Akureyrar síðastliðið haust þar sem gestirnir bjuggu á heimilum íslensku ungmennanna.  Krakkarnir gerðu ýmislegt saman í Íslandsheimsókninni, t.d. voru sameiginleg verkefni unnin á dönsku, farið í sund, Mývatnssveit heimsótt og marg fleira. Á milli heimsókna hafa nemendur unnið margvísleg krefjandi verkefni til að efla færni þeirraí talmáli. Má nefna verkefni þar sem nemendur kynntu sér Aarhus og einnig hafa þeir í farteskinu heimildamynd sem þeir hafa unnið á dönsku um íslenska unglingmenningu sem sýnd verður í heimsókninni.

Í Danmerkurferðinni munu íslensku nemendurnir búa á heimilum dönsku nemendanna auk þess sem þeir munu gista í skólanum.  Nemendur munu vinna sameiginleg skólaverkefni sem tengjast danskri menningu. Auk þess munu þeir heimsækja Aros listasafnið og Den gamle by, sem er safn gamalla húsa, fara í  skógarferð og fleira. Jafnframt verður farið í dagsferð til vinabæjar Akureyrar, Randers.

Krakkarnir eru mjög spenntir fyrir ferðinni og hafa lagt sig fram og sinnt náminu vel í vetur.