Eins og undanfarirn ár verður starfrækt útvarp í Glerárskóla vikuna fyrir árshátíð, þessa viku frá 1.-5. apríl. Útsendingar verða frá mánudegi til fimmtudags frá kl.14-18 og föstudag frá kl. 13-15. Bæði sent út hefðbundið og vefútvarp sem hægt er að hlusta beint af heimasíðunni. Dagskrárgerð og tæknimál eru algjörlega í höndum nemenda. Þá er bara að hlusta.