Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Útivistardagur í Hlíðarfjalli

Stefnt er að árlegri ferð Glerárskóla í Hlíðarfjall á morgun, miðvikudaginn 16. mars 2022.
Vegna óvissrar veðurspár óskum við eftir því að forráðamenn fylgist vel með pósti og miðlum skólans seinnipartinn í dag og/eða í fyrramálið. Þá ætti að koma endanlega í ljós hvort við getum farið upp eftir eða ekki.

Við vonum það besta og að við eigum öll góðan dag í fjallinu þar sem sumir fara á bretti, aðrir á svigskíði, enn aðrir á gönguskíði og svo mega nemendur taka með sér snjóþotur og sleða. Gönguferð verður í boði fyrir þá sem það kjósa.

Nú þegar hefur skráning á búnaði farið fram. Ekki er hægt að lána búnað til nemenda í 1.- 4. bekk og þeir nemendur sem eiga búnað geta ekki fengið lánaðan búnað í fjallinu.

Þær lyftur sem verða opnar eru: Töfrateppið, Hólabraut, Skálabraut og Hjallabraut. Lyftukortin gilda aðeins til kl. 12 þannig að allir nemendur fara heim með rútum um hádegisbil. Samvalsgreinar eru kenndar þennan dag. Hádegismatur verður snæddur í skólanum.

Mætingar, heimkoma og skólalok:

  1. – 4. bekkur: Mæting í skóla kl. 08:15. Rúta fer í Hlíðarfjall um kl. 09:00 og til baka milli kl.11:30 og 12:00, hádegismatur og síðan skólalok (frístund).
  2. – 7. bekkur: Mæting í skóla kl. 08:15. Rúta fer í Hlíðarfjall um kl. 08:30 og til baka kl.12:00 – 12:30, hádegismatur og síðan skólalok.
  3. – 10. bekkur: Mæting í skóla kl. 08:30. Rúta fer í Hlíðarfjall um kl. 08:45 og til baka kl.12:15 og 12:45, hádegismatur og síðan skólalok. Valgreinar hjá þeim sem eru í samvali á miðvikudögum.

Nemendur þurfa að koma klæddir skv. veðri. Hlífðarbuxur, húfa, vettlingar (auka í tösku) og hjálmar mega ekki gleymast heima. Allir verða að muna eftir nesti.

Allar nánari upplýsingar má fá hjá umsjónarkennurum, ritara eða stjórnendum.