Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Útivistardagur Glerárskóla í Hlíðarfjalli

Fimmtudaginn 19. mars verður útivistardagur hjá nemendum og starfsmönnum Glerárskóla.

Nánari upplýsingar má sjá hér fyrir neðan, en það er afrit af fréttabréfni sem fór heim til foreldra/forráðamanna fyrr í vikunni.


 

Glerárskóli 16. mars 2015

Ágætu foreldrar/forráðamenn Fimmtdaginn 19. mars er nemendum í Glerárskóla boðið í Hlíðarfjall.

Sumir fara á bretti, aðrir á svigskíði, enn aðrir á gönguskíði og svo mega nemendur taka með sér snjóþotur og sleða.

Gönguferð verður í boði fyrir þá sem það kjósa.

Þeir sem ekki eiga búnað geta fengið hann lánaðan í Hlíðarfjalli. Ekki verður hægt að lána búnað til nemenda í 1.-4. bekk. Þar sem töluverð ásókn hefur verið í að fá lánaðan búnað hvetjum við þá nemendur sem eiga skíði eða bretti að koma með sinn búnað.

Þær lyftur sem verða opnar eru: Töfrateppið, Hólabraut, Skálabraut og Hjallabraut. Aðrar lyftur fylgja hefðbundnum opnunartíma Hlíðarfjalls. Lyftukortin gilda allan daginn og því geta nemendur nýtt sér það en það þarf að skila inn skíðabúnaðinum þegar skipulagðri dagskrá líkur. þ.e. þegar rútur á vegum skólans fara heim.

Ef nemendur ætla að verða eftir í Hlíðarfjalli verður að koma með samþykki frá foreldrum.

Að lokinni skipulegri dagskrá eru nemendur á eigin vegum í Hlíðarfjalli.

Hádegismatur verður snæddur í skólanum.

Vakin er athygli á því að veður og færi geta breyst á skömmum tíma og verða allir að taka mið af því.

Mætingar: 1. – 4. bekkur: Mæting í skóla kl. 08:15. Rúta í Hlíðarfjall kl. 08:50 og til baka kl.12:15 og skólalok kl.13:15

5. – 7. bekkur: Mæting í skóla kl. 08:15. Rúta fer í Hlíðarfjall kl. 08:40 og til baka kl.12:30 og skólalok kl. 13:15

8. – 10. bekkur: Mæting í skóla kl. 08:30. Rúta fer í Hlíðarfjall kl. 09:00 og til baka kl.13:00.

Nemendur þurfa að koma klæddir skv. veðri. Hlífðarbuxur, húfa, vettlingar (auka í tösku) og hjálmur mega ekki gleymast heima. Muna eftir nesti

 – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – –

Ég undirrituð/aður staðfesti að

Nafn nemanda ________________________________________________ Bekkur _______ má vera lengur í Hlíðarfjalli. Ég geri mér grein fyrir að barnið er á mína ábyrgð eftir að skipulagðri dagskrá Glerárskóla lýkur í fjallinu. ( Á ekki við um 1.-4.bekk)

Nafn foreldris/forráðamanns: __________________________________________________