Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Útivist á morgun

Á morgun, fimmtudaginn 28. ágúst, er útivistardagur í Glerárskóla. Nemendur og starfsfólk Glerárskóla verða þá á ferð og flugi úti um víðan völl. Skóladagurinn verður frá 8:15 til kl. 13:15. Frístund er opin að skóla loknum fyrir skráða nemendur í 1. – 4. bekk.

Útivistardagur er þjálfun í eflingu þrautseigju hjá öllum nemendum auk heilbrigðis og útiveru.
Ýmislegt verður brasað á útvistardaginn og vonum við að veðrið leiki við okkur.

Yngsta stigið gerir eftirfarandi:

  1. bekkur – Heimasvæði- nærumhverfi.
    2. bekkur – Hamarkotstún og sundlaugargarður.
    3. bekkur og 4.bekkur – Krossanesborgir.

Miðstigið: Krossanesborgir

Unglingastigið: Skólavarða á Vaðlaheiði

Við minnum alla á að senda nemendur klædda miðað við veðuraðstæður. Hér koma nokkrar ábendingar sérstaklega fyrir þá nemendur sem eru á leið í fjallgöngu.

Klæðnaður: Æskilegt er að klæðast vind- og vatnsþéttum stakk eða góðri úlpu. Flíspeysur/ullarpeysur eru hentugar innan undir eða einar sér ef veður er gott. Ekki nota gallabuxur, best er að klæðast göngubuxum úr teygju eða ullarefni (íþróttabuxur). Hafið með vettlinga og húfu.
Fótabúnaður: Mikilvægt er að vera vel búinn til fótanna. Best er að vera í góðum skóm og jafnvel klæðast ullarsokkum. Hafið aukapör af sokkum.
Nesti: Nauðsynlegt er að borða vel áður en lagt er upp í útivistarferð. Nestið á að vera létt og næringarríkt. Gott er að hafa með heitan drykk á brúsa fyrir þá sem það kjósa og vatnsbrúsa.

Hafið nesti og aukaföt í litlum bakpoka.