Miðvikudaginn 21. mars eru tvær árshátíðarsýningar í Glerárskóla.
Kennsla er til kl. 13:15. Sýningar verða kl. 17:00 og kl. 19:30. Hvor sýning tekur u.þ.b. eina og hálfa klukkustund. Verð á sýningar er kr. 500 fyrir börn á grunnskólaaldri, kr. 800 fyrir fullorðna,
frítt er fyrir börn undir skólaaldri. Við mælum ekki með því að foreldrar taki ungabörn með sér á sýningarnar. Vakin er athygli á því að þeir nemendur sem eru að sýna hafa þegar séð atriðin á undan og eftir sínu atriði á general prufu.
Kaffihús nemenda í 10. bekk og foreldra þeirra verður starfrækt á milli sýninga eða kl. 18:00 -19:30 á neðri hæð skólahússins, í matsal. Þar verða til sölu drykkir og brauð af hlaðborði. Kaffi og meðlæti er á kr. 1000, en kr. 500 fyrir 6 ára og yngri. Hagnaður kaffihússins fer allur í ferðasjóð 10. bekkjar.
Fimmtudaginn 22. mars er ein árshátíðarsýning og Árshátíðarball Glerárskóla.
Kennsla er til kl. 13:15. Sýning er kl. 15:30. Verð á sýningu er kr. 500 fyrir börn á grunnskólaaldri, kr. 800 fyrir fullorðna og frítt er fyrir börn undir skólaaldri.
Kaffihús nemenda í 10. bekk og foreldra þeirra verður starfrækt kl. 17:00 – 19:00 á neðri hæð skólahússins, í matsal. Þar verða til sölu drykkir og brauð af hlaðborði. Kaffi og meðlæti er á kr. 1000, en kr. 500 fyrir 6 ára og yngri. Hagnaður kaffihússins fer allur í ferðasjóð 10. bekkjar.
Árshátíðarball fyrir nemendur í 1.- 4. bekk hefst kl. 17:45 í íþróttahúsi og stendur til kl.19:00. Ókeypis er á ballið. Bland í poka kostar 250 kr. og Svali kr. 100. Foreldrar athugið að kaffihúsið er opið á þessum tíma.
Árshátíðarball fyrir nemendur í 5. – 10. bekk hefst kl. 20:00. Því lýkur hjá 5.- 6. bekk kl. 21:30, 7.bekk kl. 22:00 og hjá 8. – 10. bekk kl. 23:30. Verð fyrir 5. – 7. bekk er kr. 700 en kr. 1500 fyrir 8.-10. bekk.
Nemendur í 5. bekk mega velja á hvort ballið þeir fara. Munið snyrtilegan klæðnað !
Allur ágóði sýninga og árshátíðar fer í að greiða niður skólaferðalög og vettvangsferðir nemenda.
Við viljum benda forráðamönnum á að meðan á sýningu stendur er óæskilegt að vera með ráp inn og út út íþróttasal. Sýnum nemendum virðingu og fylgjumst með sýningunni af áhuga J
Föstudaginn 23. mars er skóladagur í Glerárskóla.
Kennsla hefst kl.10:00 og er samkvæmt stundarskrá eftir það. Að skóla loknum á föstudeginum hefst páskafrí nemenda.
Þetta árið verður Frístund opin fyrir alla nemendur frá 1. – 4. bekk ef þeir óska að kom á milli klukkan 8:00-10:00 eða þar til kennsla hefst. Ekki þarf að skrá fyrirfram.