Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Upphátt – fulltrúar Glerárskóla valdir

Nemendur úr sjöunda bekk Glerárskóla sýndu í morgun hversu snjallir upplesarar þeir eru, en þá kepptu þeir sín á milli um hver verður fulltrúi skólans í lokakeppni Upphátt, upplestrarkeppni grunnskólanna á Akureyri, sem fram fer fimmtudaginn 7. mars næstkomandi.
Greinilegt var á frammistöðu nemenda í morgun að þeir hafa lagt sig fram að undanförnu undir styrkri handleiðslu kennara síns, Írisar Hafberg. Í dómnefnd voru þau: Esther Gestsdóttir umsjónarkennara, Fríða Pétursdóttir, ÍSAT verkefnastjóri og Sverrir Páll Erlendsson, fyrrverandi íslenskukennari við MA sem völdu síðan sigurvegarana, þau Helgu Maren Helgadóttur og Patrek Pál Pétursson.