Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til miðvikudags, frá 07:45 til 14:30 á fimmtudögum og á föstudögum til klukkan 14:00.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00..

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Upphátt, forkeppni í Glerárskóla

Nemendur í 7. bekk hafa verið iðnir við æfingar fyrir forkeppni Upphátt,  upplestrarkeppni grunnskólanna á Akureyri, var haldin hér í Glerárskóla í morgun. Alls tóku 11 nemendur þátt í forkeppninni, sex stúlkur og fimm piltar.

Að þessu valdi dómnefnd, Friðrik Örn Ingólfsson og Starra Ólaf Sigurðsson sigurvegara og verða þeir fulltrúar Glerárskóla til að taka þátt í lokakeppninni sem haldin verður í Brekkuskóla þriðjudaginn 10. mars.

Dómnefndina í ár skipuðu Hrönn Björgvinsdóttir frá Amtsbókasafninu, Sverrir Páll Erlendsson fyrrum íslenskukennari við Menntaskólann á Akureyri og Fríða Pétursdóttir ÍSAT kennari við Glerárskóla. Viktor Helgi Hjartarson, nemandi í 7. bekk lék á píanó við keppnina.

Á meðfylgjandi mynd má sjá sigurvegarana, píanóleikarann og dómnefndina.

Við óskum þeim Friðriki og Starra til hamingju með sigurinn.