Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til miðvikudags, frá 07:45 til 14:30 á fimmtudögum og á föstudögum til klukkan 14:00.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00..

Facebook síða Glerárskóla

Ungmennaþing um ofbeldi

Samtökin Barnaheill stóðu fyrir ungmennaþingi í menningarhúsinu Hofi gær, fimmtudaginn 5. mars. Um 40 ungmenni tóku þátt í þingstörfunum en þau komu úr 10. bekk í Glerárskóla, Brekkuskóla, Naustaskóla, Oddeyrarskóla og Síðuskóla auk 16-18 ára nemenda úr Menntaskólanum á Akureyri.

Þema þingsins var kynferðisofbeldi í nánum samböndum unglinga. Markmið þinga samtakanna er að fá innsýn í upplifun og viðhorf unga fólksins og hverju þau vilja koma á framfæri varðandi ofbeldi í nánum samböndum.

Barnaheill vilja kanna hvort ungmenni þekki einkenni óheilbrigðra sambanda og ofbeldis, og viti hvert þau geta leitað eftir aðstoð. Einnig er leitast við að heyra hvaða mögulegar lausnir þau sjái sjálf til að draga úr slíku ofbeldi.

Heilmikill lærdómur falinn í þátttöku í ungmennaþingi sem er einnig dýrmætt tækifæri fyrir ungt fólk til að tjá skoðanir sínar og væntingar. Barnaheill munu taka saman upplýsingar og niðurstöður frá þingunum og nota þær til að þrýsta á ráðafólk að beita sér fyrir úrbótum og fjölgun úrræða fyrir ungmenni.

Málefnið er afar mikilvægt því of mikið er um kynferðisofbeldi gegn ungu fólki og milli ungs fólks samkvæmt ársskýrslu Stígamóta, íslensku Æskulýðsrannsókninni og tilkynningum til lögreglu.

Þingfulltrúar úr 10. bekk Glerárskóla voru þau Dagur, jökull, Guðrún, Kristín og Ólöf. Öll stóðu þau sig með prýði. Úr hópi starfsmanna sóttu þingið þar Hulda Ósk, Þorbjörg og Rakel.