Tungan er sterkasti vöðvi mannslíkamans. Þetta kemur fram í vísindafrétt sem hangir á gangi unglingastigs hér í Glerárskóla. Þar hengja krakkarnir iðulega upp eitthvað athyglisvert sem þau sjá í námi sínu.
Í sömu grein kemur einnig fram að kjálkabeinið sé það sterkasta í mannslíkamanum. Líffærin eru okkur mikilvæg en við getum lifað án sumra þeirra, t.d. getum við lifað án magans, miltans og jafnvel þótt það vanti 75% af lifrinni. Reyndar væri það vissulega skert líf en við hefðum það af.
Samkvæmt greininni eru konur lyktnæmari en karlar og þar kemur fram að nefið nær að greina á milli 50.000 lyktartegunda.
Í líkamanum er nægilegt járn til þess að búa til þokkalegasta nagla en ekki það mikið að hætta sé á að við ryðgum.
Það er bæði fróðlegt og skemmtilegt að skoða ganga skólans.


