Nemendur okkar í 10. bekk fengu heimsókn í morgun. Þýskubíllinn sem er á leið sinni um landið kom til okkar í Glerárskóla.
Tilgangurinn með heimsókninni er að vekja áhuga á þýsku og þýskri menningu.
Nemendur fengu að spreyta sig í þýsku, horfðu á skemmtilegt tónlistarmyndband, fræddust um merka staði í Þýskalandi og skoðuðu kort af landinu.
Í lokin fengu nemendur þýska fánann að gjöf og gjafapoka. Þökkum við kærlega fyrir þessa skemmilegu heimsókn.