Nemendur í Glerárskóla tóku vel á móti Þorgrími Þráinssyni í morgun og lögðu sannarlega við hlustir því hann var kominn til að ræða við þau um margt sem skiptir máli.
Hann hitti nemendur á miðstigi og hvatti þá til dáða varðandi lestur og skapandi hugsun. Hann sagði þeim frá aðferðum sem gott er að nota til að fá hugmyndir og hvernig þær þróast yfir í bækur. Þá skiptir máli að kunna að koma fyrir sig orði og hafa góðan orðaforða. Hann hvatti krakkana til þess að auka orðaforðann sinn með því að læra tvo ný orð á hverjum degi.
Krakkarnir í tíunda bekk fengu að hlíða á fyrirlesturinn „Verum ástfangin af lífinu“ sem er hvatning til nemenda um að láta drauma sína rætast með því að bera ábyrgð á eigin lífi, setja sér markmið, hafa trú á sjálfum sér til að ná markmiðunum og skipuleggja sig í samræmi við það.
Þorgrímur fjallaði einnig um mikilvægi þess að halda góðu jafnvægi milli einkalífs, atvinnu og tómstunda til þess að þroskast fallega og lifa björtu lífi. Þá hvatti hann nemendur til að sýna samkennd, bera virðingu fyrir öllum og hafa hugrekki til að fylgja hjartanu, því við erum öll einstök og eigum að njóta þess.