Skólalóðin okkar er smám saman að taka á sig mynd, þótt enn sé töluvert í að hún verði tilbúin. Nokkur leiktæki eru þegar komin upp meðan önnur bíða uppsetningar. Nokkur jarðvinna er eftir og öll vonum við að vel gangi og veður verði okkur hagstætt þótt haustið sé óneitanlega farið að minna á sig.
Nemendur sýna framkvæmdunum mikinn skilning og virða lokanir á framkvæmdasvæðinu í hvívetna og stytta sér stundir í margvíslegum leikum hvar sem tækifæri gefst.