Glerárskóli

Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til miðvikudags, frá 07:45 til 14:30 á fimmtudögum og á föstudögum til klukkan 14:00.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Facebook síða Glerárskóla

Þemadagar og uppbrotsdagar fram undan

Næstu daga verður líf og fjör í skólanum því miðvikudaginn 3. júní og fimmtudaginn 4. júní fara fram þemadagar. Kennsla stendur frá kl. 8:15–12:00 en gæsla er fyrir nemendur í 1.–4. bekk til kl. 13:15. Eftir það tekur Frístund við hjá þeim sem þar eru skráðir.

Þema daganna að þessu sinni er Lýðheilsa og umhverfi. Nemendur vinna saman í hópum eftir stigum: 1.–4. bekkur, 5.–7. bekkur og 8.–10. bekkur. Verkefnin eru fjölbreytt og fara fram bæði inni og úti. Við minnum því á að nemendur þurfa að klæða sig eftir veðri. List- og verkgreinakennarar skólans hafa séð um utanumhald þemadaganna og má búast við skapandi og fræðandi verkefnum sem efla lykilhæfni nemenda.

Föstudagurinn 5. júní og mánudagurinn 8. júní eru uppbrotsdagar. Þá vinna nemendur að fjölbreyttum verkefnum, aðallega utandyra, sem styrkja samvinnu, samskipti og hugmyndaauðgi. Þessir tveir dagar eru til kl. 13:15 og að þeim loknum tekur Frístund við hjá skráðum nemendum.