Næstu tvo daga, fimmtudag og föstudag, verða þemadagar í Glerárskóla. Hefðbundið skólastarf verður brotið upp og nemendur vinna að margvíslegum verkefnum sem tengjast jafnrétti. Þessa daga lýkur skóladeginum klukkan 13.00. Frístund er opin fyrir skráða nemendur frá þeim tíma.