Þemadagar í Glerárskóla verða þriðjudaginn 17. nóvember og miðvikudaginn 18. nóvember n.k. og bera yfirheitið United We Play, United We Win. Heitið er tengt Erasmus+ verkefni sem skólinn tekur þátt í næstu tvö árin ásamt 6 öðrum löndum en verkefnið leggur áherslu á að nýta leiki til að efla félagslegt atgervi nemenda.
Þemadögunum verður því að þessu sinni varið til að undirbúa kynningu á löndunum sex, skólanum okkar og umhverfi hans auk þess að efla leik og samveru nemenda.
Þessa daga er skólastarf frá kl. 8:15 – 13:15/13:20 auk valgreina utan skóla. Nemendur mæta til umsjónarkennara á morgnana og ljúka einnig degi hjá umsjónarkennara í umsjónarstofu. Eftir nafnakall fara nemendur í hópana sína og hefja skipulag dagsins. Loturnar eru eins og á venjulegum skóladegi og kaffi og matartímar eru á sínum stað. Hjá öllum stigum er unnið í hópum og síðan er uppbrot með leikjum inn á milli. Allur skólinn mun síðan hittast í lokin og leika saman til að ljúka þemadögunum. Allir forráðamenn eru hjartanlega velkomnir í skólann til að taka þátt í þessu magnaða verkefni.
Samstarfslöndin okkar eru: Ítalía, Spánn, Tyrkland, Litháen, Búlgaría og Rúmenía.