Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Það styttist í árshátíð

Það er undirliggjandi spenna, eftirvænting og gleði meðal nemenda. Það styttist í árshátíð skólans með öllu tilheyrandi. Unglingarnir eru farir að skreyta skólann, bekkir æfa atriðin sín, sviðið er komið upp og á morgun verður gleðin við völd.

Verið velkomin á árshátíðarsýningu Glerárskóla, en sýningarnar verða þrjár. Hver þeirra tekur u.þ.b. eina og hálfa klukkustund.

Verð á sýningar er kr. 500 fyrir börn á grunnskólaaldri en kr. 1.000 fyrir eldri. Hægt er að greiða með peningum eða korti. Ekki þarf að panta miða fyrir fram.

Við mælum með því að foreldrar taki ekki ung börn með sér á sýningarnar. Vakin er athygli á því að þeir nemendur sem eru að sýna hafa þegar séð atriðin á undan og eftir sínu atriði á generalprufu.

Við viljum benda forráðamönnum á að meðan á sýningu stendur verður ráp inn og út úr íþróttasal ekki leyft. Sýnum nemendum virðingu og fylgjumst með sýningunni af áhuga.

Gengið verður inn um inngang við íþróttahús Glerárskóla. Á tengigangi verður sýning á listaverkum og ljóðum nemenda skólans sem hægt er að njóta fyrir og eftir sýningu.

Kaffisala/kökuhlaðborð verður á vegum 10. bekkinga. Það verður í boði á milli sýninga á miðvikudegi og eftir sýningu á fimmtudegi. Verð kr. 1.500 en 500 kr. fyrir börn á leikskólaaldri. Miðvikudaginn 20. mars eru tvær árshátíðarsýningar í Glerárskóla. Kennt verður til kl. 13:15. Sýningar verða kl. 17:00 og kl. 19:30. Á fimmtudaginn 21. mars verður sýning klukkan

Fimmtudaginn 21. mars er ein árshátíðarsýning og árshátíðarball Glerárskóla. Kennt verður til kl. 13:15. Sýning er kl. 15:30.

Árshátíðarball fyrir nemendur í 1.- 4. bekk hefst kl. 17:45 í íþróttahúsi og stendur til kl. 18:45. Kostar 500 kr. á ballið og innifalið er nammi og drykkur. Innganga um íþróttahús.

Árshátíðarball fyrir nemendur í 5. – 10. bekk hefst kl. 20:00. Því lýkur hjá 5.- 6. bekk kl. 21:30, 7. bekk kl. 22:00 og hjá 8. – 10. bekk kl. 23:30. Verð fyrir 5.-7. bekk er kr. 1.000 en kr. 1.500 fyrir 8.-10. bekk. Innganga um íþróttahús.

Nemendur í 5. bekk mega velja á hvort ballið þeir fara. Munið snyrtilegan klæðnað!

Allur ágóði sýninga og árshátíðar fer í að greiða niður skólaferðalög og vettvangsferðir nemenda.