Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Það er alltaf gott veður

Það kyngdi niður snjó í morgun og það blés nokkuð hressilega þegar hópur krakka í fimmta og sjötta bekk fóru með kennara sínum niður í Kvenfélagslund. Í skjóli við trjágróðurinn áttu þau góða stund við varðeldinn og fengu öll að grilla sér sykurpúða sem brögðuðust aldeilis ljómandi vel.

Krakkarnir höfðu á orði að það væri alltaf gott veður ef þeir klæddu sig vel. Það er nokkuð til í því.