Hið árlega sundmót á miðstigi, Halldórsmótið, var haldið í gær fimmtudag. Þar keppa lið nemenda úr 5.-7.bekkjum. Mikið fjör og háspenna var á mótinu og að lokum stóðu nemendur í 7. bekk Kaldbak uppi sem sigurvegarar. Hér fylgir mynd af sigurvegurunum, en liðið skipuðu Karen Hulda, Dagmar Huld, Hafrún Linda, Rebekka Rut, Natan Dagur og Elmar Nökkvi. Óskum við þessum sundköppum til hamingju með sigurinn