Undanfarnar vikur hafa 7. bekkingar æft sig í framsögn og upplestri fyrir Stóru upplestrarkeppnina undir dyggri stjórn Helgu Thorarensen og umsjónarkennurum. Í morgun fóru síðan fram úrslit og fékk dómnefndin, sem skipuð var þeim Fríðu Pétursdóttur, Páli Ingvasyni og Helgu Thorarensen, það erfiða hlutverk að velja úr þrjá fulltrúa Glerárskóla sem munu taka þátt í lokakeppninni 29. mars. Lesararnir stóðu sig virkilega vel.
Fulltrúar Glerárskóla í lokakeppninni sem valdir voru eru Þórunn Eva Snæbjörnsdóttir, Viktor Helgi Gunnarsson og Alma Sól Valdimarsdóttir.